Vörur
Allt okkar helsta efni höfum við einnig til sölu. Afhending er eftir samkomulagi, sent eða sótt. Verðtilboð er sent þegar upplýsingar um verk og magn efnis liggja fyrir.
UndirlagMida Balt 3mm
Vatnsþéttandi undirlag gert úr SBS pólýesterbættu jarðbiki.
- Óofið pólýester með hágæða bindingu: jarðbik, SBS gúmmí (styrol-bútadíen-stýrol) og fylling.
- Tryggir áreiðanlega vatnsþéttingu á flötum þökum.
- Hentar einkar vel sem rakasperra og sem undirlag á timburþökum.
UndirlagMida Technoelast 4mm
Vatnsþéttandi undirlag gert úr SBS-pólýesterbættu jarðbiki.
- Með bestu tæknilegu breytum, endingu og gæðum.
- Yfirborðið er með kvarssandi.
- Hentar einkar vel fyrir veðuraðstæður á Íslandi.
YfirlagMida Technoelast 4mm Grey Slates
Vatnsþéttandi yfirlag gert úr SBS-pólýesterbættu jarðbiki.
- Yfirborðið er með steinkornum sem veita sólarvörn og hlífa þaki og þakpappa gegn útfjólubláu ljósi.
- Hentar einkar vel fyrir veðuraðstæður á Íslandi.
EinangrunTechnicol XPS Carbon prof 300
XPS vatnsheld einangrun.
- Hentar einkar vel fyrir viðsnúin (öfug) þök.
- Sterk og með mjög lítilli hitaleiðni.
- Sýgur nánast ekkert vatn í sig.
GrunnurBitumen Prime Coating
Jarðbiks-/tjöruprimer til að tjörupappi myndi viðloðun við steypu og fleira.
Er þakið farið að leka?
Hringdu eða sendu okkur fyrirspurn — við sendum verðtilboð þegar upplýsingar um verk og magn efnis liggja fyrir.
